Myndasafn
- Pakkaferðir
Staðsetning
Hótellýsing
Royal Seginus er gott 5 stjörnu hótel sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Um 700 metrar eru á baðströnd hótelsins og er supermarkaður á hótelinu með helstu nauðsynjum. Garður hótelsins er stór og hefur góða sólbaðsaðstöðu. 1 stór sundlaug, 1 sundlaug, 1 sundlaug með vatnsrennibrautum, 1 barnalaug, 1 barnalaug með vatnsrennibrautum og sullsvæði. Ýmis afþreying er á hótelinu, krakkaklúbbur (4-12 ára), tívolí garður, leikjaherbergi og leikvöllur. Líkamsrækt, heilsulind (gegn gjaldi), borðtennis, boccia, blak, píla, danstímar og kvöldskemmtun.
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, 9 A´la Carte veitingastaðir, 2 snarl veitingastaðir, 1 bakarí/kökur, 2 sundlaugarbarir, 1 snarlbar og 4 barir.
Í boði eru superior standard herbergi, fjölskyldu duplex herbergi, samtengd fjölskyldu herbergi og junior svíta. Í öllum herbergjum eru svalir eða verönd. Sjónvarp, sími, skrifborð, sófi, minibar, ketill og hárþurrka. Þráðlaust net, loftkæling og öryggishólf.
Þetta er góð 5 stjörnu gisting þar sem fjölbreytta afþreyingu er að finna á hóteli fyrir bæði börn og fullorðna. Aðeins 15 km akstur er í fornu borgina Perge en hún er ein af elstu fornu borgum Tyrklands. Um 12 km akstur er í miðbæ Antalya frá hótelinu.
Frá flugvellinum í Antalya til Royal Seginus er um 17 km.