Myndasafn
- Pakkaferðir
Staðsetning
Hótellýsing
Aska Lara Resort & Spa Hotel er gott 5 stjörnu hótel sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Einkaströnd er við hótelið en einnig býður hótelið upp á akstur að ströndinni yfir sumartímann. Supermarkaður með helstu nauðsynjum er á hótelinu. Garður hótelsins er stór og hefur góða sólbaðsaðstöðu. 3 sundlaugar, 2 laugar með vatnsrennibrautum, 1 barnalaug með rennibraut,
1 sullsvæði fyrir börn. Ýmis afþreying er á hótelinu. Krakkaklúbbur, leikjaherbergi, leikvöllur, ævintýragarður þar sem er m.a zipline. Kúrekabær fyrir krakka, lítill fótboltavöllur, körfuboltavöllur og bogfimi. Líkamsrækt, heilsulind, nudd og snyrtimeðferðir gegn gjaldi. Skemmtikraftar, lifandi tónlist og kvöldskemmtanir.
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, 6 A´la Carte veitingastaðir, 1 brasserie bar, 2 snarlbarir,
2 sundlaugarbarir, 1 strandbar og 3 barir.
Í boði eru standard tvíbýli, fjölskylduherbergi og samtengt herbergi. Í öllum herbergjum eru svalir eða verönd. Sjónvarp, sími, minibar, ketill, hárþurrka og inniskór. Þráðlaust net, loftkæling og öryggishólf.
Þetta er góð 5 stjörnu gisting þar sem fjölbreytta afþreyingu er að finna á hóteli fyrir bæði börn og fullorðna. Fjölbreytt vatnasport er í næsta nágrenni við gistinguna og er um 13 km í miðbæ Antalya.
Frá flugvellinum í Antalya til Aska Lara Resort & Spa Hotel er um 17 km