Myndasafn
- Pakkaferðir
Staðsetning
Hótellýsing
Limak Lara De Luxe Hotel and Resort er gott 5 stjörnu hotel sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Einkaströnd er við hótelið og er supermarkaður með helstu nauðsynjum einnig á hótelinu. Garður hótelsins er stór og hefur góða sólbaðsaðstöðu. 2 stórar sundlaugar, 1 barnalaug, 1 barnalaug með vatnsrennibrautum, 1 sundlaug með vatnsrennibrautum, 1 inni sundlaug og 1 inni barnalaug.
Ýmis afþreying er á hótelinu. Krakkaklúbbur (4-12 ára), unglingaklúbbur (13-17 ára), leikjaherbergi, leikvöllur, skvass, boccia, píla, borðtennis, keila og biljard. Líkamsrækt, heilsulind (gegn gjaldi), lifandi tónlist, skemmtikraftar og kvöldskemmtun.
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, snarl veitingastaður, 3 A´la Carte veitingastaðir, kaffitería, 3 barir og sundlaugarbar.
Í boði eru economy herbergi, standard herbergi, fjölskyldu herbergi og junior svíta. Í öllum herbergjum eru svalir nema í junior svítu þá er verönd. Sjónvarp, sófi, skrifborð, minibar og hárþurrka. Þráðlaust net, loftkæling og öryggishólf.
Þetta er góð 5 stjörnu gisting þar sem fjölbreytta afþreyingu er að finna á hóteli fyrir bæði börn og fullorðna. Aðeins 15 km akstur er í fornu borgina Perge en hún er ein af elstu fornu borgum Tyrklands. Um 12 km akstur er í miðbæ Antalya frá hótelinu.
Frá flugvellinum í Antalya til Limak Lara De Luxe Hotel and Resort er um 15 km.