Fuerteventura
, Corralejo

Fuenteperk Resort

Yfirlit
Fuenteperk Resort er gott 3 stjörnu íbúðarhótel í Corralejo sem hentar vel fyrir fjölskyldur. 
Aðeins er um 3 mínútna gangur í næsta supermarkað frá hótelinu og um 350 metrar á næstu baðströnd. Garður hótelsins er ágætur, 1 stór sundlaug, 1 busl laug fyrir minnstu börnin og fín sólbaðsaðstaða. Einnig er hægt að fara í nudd og jógatíma á hótelinu gegn gjaldi. 
Á hótelinu er bar og sundlaugarbar. 
 

Staðsetning

Hótellýsing

Í boði eru íbúðir með einu svefnherbergi. Allar íbúðir hafa svalir/verönd. Hver íbúð er með borðstofu/stofu, lítið eldhús, borðbúnað, lítinn ísskáp, ofn, örbylgjuofn og ketil. Sjónvarp, síma, hárþurrku, öryggishólf (gegn gjaldi), loftkælingu og þráðlaust net í almenningsrýmum. Þetta er góð 3 stjörnu gisting á Corralejo svæðinu þar sem stutt er í veitingastaði, bari og fjölbreytta afþreyingu fyrir bæði börn og fullorðna. Frá flugvellinum er um 40 km á Fuenteperk Resort.

Bóka