Fuerteventura
, Corralejo

Atlantic Garden Beach Mate

Yfirlit
Atlantic Garden Beach Mate er gott 3 stjörnu íbúðahótel í Corralejo sem hentar vel fyrir fjölskyldur. 
Aðeins er um 4 mínútna gangur í næsta supermarkað frá hótelinu og um 600 metrar á næstu baðströnd. Garður hótelsins er stór 1 stór sundlaug og 1 barnalaug. Góð sólbaðsaðstaða er í garðinum, leiksvæði fyrir börn og tennisvöllur. Einnig er líkamsrækt á hótelinu og hægt að fara í biljard og pílu. 
Á hótelinu er bar og sundlaugarbar. Auðvelt er að ferðast með strætó til og frá hótelinu fyrir þá sem vilja skoða eyjuna, stoppustöð er í stuttu göngufæri frá hótelinu.
 

Staðsetning

Hótellýsing

Í boði eru íbúðir með einu svefnherbergi. Allar íbúðir hafa svalir/verönd. Hver íbúð er með borðstofu/stofu, lítið eldhús, borðbúnað, lítinn ísskáp, örbylgjuofn og ketil. Sjónvarp, hárþurrku, öryggishólf (gegn gjaldi), viftu og þráðlaust net.  
Þetta er góð 3 stjörnu gisting á Corralejo svæðinu þar sem eru fallegar gönguleiðir og stutt er í ýmsa afþreyingu fyrir bæði börn og fullorðna. 
Frá flugvellinum er um 40 km á Atlantid Garden Beach Mate
 
Bóka