Fuerteventura
, Corralejo

Buendia Correlejo Nohotel

Yfirlit
Buendia Correlejo Nohotel er gott 4 stjörnu íbúðahótel í Corralejo sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Aðeins er um 6 mínútna gangur í næsta supermarkað og um 750 metrar á næstu baðströnd. 
Garður hótelsins er snyrtilegur, 1 upphituð sundlaug og góð sólbaðsaðstaða. Einnig er líkamsrækt á hótelinu. Fallegar gönguleiðir meðfram strandlengjunni og stutt er niður á höfn frá hótelinu þar sem má finna veitingastaði, bari og ýmsa afþreyingu. Á hótelinu er veitingastaður, bar og snarlbar. Í boði eru íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum. 
 

Staðsetning

Hótellýsing

Í boði eru íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum. 
Athugið að í íbúðunum sem eru með tveimur svefnherbergjum eru kojur í öðru herberginu. 
Allar íbúðir hafa svalir eða verönd. Lítið eldhús, borðbúnað, ísskáp, örbylgjuofn og ketil. Sjónvarp, hárþurrku, öryggishólf (gegn gjaldi) og þráðlaust net.  
Þetta er góð 4 stjörnu gisting á Corralejo svæðinu þar sem eru fallegar gönguleiðir og stutt er í ýmsa afþreyingu fyrir bæði börn og fullorðna. 
Frá flugvellinum er um 42 km á Buendia Correlejo Nohote.
 
Bóka