Fuerteventura
, Corralejo

Barcelo Corralejo Sands

Yfirlit
Barcelo Corralejo Sands er gott 4 stjörnu hótel á Corralejo svæðinu sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Supermarkaður er við hliðiná hótelinu og um 400 metrar á næstu baðströnd. 
Garður hótelsins er stór með 1 stóra sundlaug og 1 barnalaug. Góð sólbaðsaðstaða og leikvöllur fyrir börn. Ýmis afþreying er á hótelinu kvöldskemmtun, lifandi tónlist, krakkaklúbbur, borðtennis, og biljard (gegn gjaldi). Líkamsrækt og heilsulind (gegn gjaldi). Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, bar og snarlbar. 
 

Staðsetning

Hótellýsing

Í boði er tvíbýli, deluxe tvíbýli og fjölskyldu svíta. Svalir eða verönd er í tvíbýli en ekki í öllum öðrum herbergjum. Í öllum herbergjum er sjónvarp, loftkæling, þráðlaust net og öryggishólf (gegn gjaldi).  Þetta er góð 4 stjörnu gisting á Corralejo svæðinu með fjölbreytta afþreyingu bæði á hótelinu og í næsta nágrenni fyrir bæði börn og fullorðna.Frá flugvellinum er um 40 km á Barcelo Corralejo Sands.

Bóka