Spánn
, Costa del Sol
, Torremolinos

Sol Principe

Yfirlit
Sol Principe er gott 4 stjörnu hótel á Torremolinos sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Supermarkaður er í um 2 mínútna göngufjarlægð og um 5 mínútur í næstu baðströnd. Garður hótelsins er stór með góða sólbaðsaðstöðu, 1 stór sundlaug, 1 barnalaug og 1 innilaug. Ýmis afþreying er á hótelinu, barnaklúbbur, leikjaherbergi, leikvöllur fyrir börn úti, mini golf og líkamsrækt. Skemmtikraftar, kvöldskemmtun og lifandi tónlist. Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, snarlbar og bar.

Staðsetning

Hótellýsing

Í boði eru Sol tvíbýli, Sol fjölskyldu svíta og Sol junior svíta. Í öllum herbergjum eru svalir eða verönd. Sjónvarp, sími, minibar, hárþurrka, þráðlaust net, loftkæling og öryggishólf (gegn gjaldi). Í fjölskyldu svítu of junior svítu er einnig svefnsófi. Þetta er góð 4 stjörnu gisting vel staðsett rétt við ströndina Playamar. Fjölbreytt afþreying bæði á hóteli og í næsta nágrenni. Frá flugvellinum í Malaga er um 8 km á Sol Principe.
Bóka