Royal Decameron Tafoukt Beach Resort & Spa er gott 4 stjörnu hótel sem hentar vel fyrir pör. Hótelið stendur við baðströnd og er supermarkaður á hótelinu. Garður hótelsins hefur ágæta sólbaðsaðstöðu og 2 sundlaugar. Ýmis afþreying er á hótelinu, sundleikfimi, yoga, líkamsrækt og borðtennis. Kvöldskemmtun og næturklúbbur.
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, veitingastaður, snarlbar og 3 barir.
Myndasafn
Bóka
Pakkaferðir
Staðsetning
Hótellýsing
Royal Decameron Tafoukt Beach Resort & Spa er gott 4 stjörnu hótel sem hentar vel fyrir pör. Hótelið stendur við baðströnd og er supermarkaður á hótelinu. Garður hótelsins hefur ágæta sólbaðsaðstöðu og 2 sundlaugar. Ýmis afþreying er á hótelinu, sundleikfimi, yoga, líkamsrækt og borðtennis. Kvöldskemmtun og næturklúbbur.
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, veitingastaður, snarlbar og 3 barir.
Í boði eru Standard tvíbýli, svíta með sjávarsýn og svíta með garðsýn. Í öllum gistivalmöguleikum eru svalir eða verönd. Sjónvarp, sími og hárþurrka. Loftkæling, öryggishólf (gegn gjaldi) og þráðlaust net á almennings svæðum. Í svítunum er einnig setustofa.
Þetta er góð 4 stjörnu gisting sem er vel staðsett aðeins um 1,5 km frá miðbæ Agadir þar sem er iðandi mannlíf, verslanir og veitingastaðir. Falleg gönguleið meðfram strandlengjunni liggur frá hótelinu. Souk El Had markaðurinn er í um 10 mínútna akstursfjarlægð frá gististaðnum.
Frá flugvellinum í Agadir til Royal Decameron Tafoukt Beach Resort & Spa er um 23 km.