Marokkó
, Agadir

Palais des roses by Pickalbatros

Yfirlit
Palais des roses by Pickalbatros er gott 4 stjörnu hótel sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Hótelið stendur við baðströnd og er um 1,5 km í matvöruverslun. Garður hótelsins er stór og fallegur, hefur góða sólbaðsaðstöðu og beint aðgengi út á einskaströnd hótelsins. 3 sundlaugar og 1 inni sundlaug. Ýmis afþreying er á hótelinu, vatnsrennibrautir fyrir börn og úti leikvöllur. Tennisvöllur, píla, líkamsrækt, heilsulind og vellíðunaraðstaða þar sem hægt er að fara í snyrti og vellíðunarmeðferðir gegn gjaldi. Kvöldskemmtanir, karókí og lifandi tónlist. 
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, 2 veitingastaðir, bar og strandbar.
 
Staðsetning

Hótellýsing

Í boði eru Standard herbergi, Deluxe herbergi, Deluxe fjölskylduherbergi og Junior svíta. 
Í öllum herbergjum eru svalir eða verönd. Sjónvarp, ketill, minibar og hárþurrka. Þráðlaust net, loftkæling og öryggishólf. 
Þetta er góð 4 stjörnu gisting sem hefur fjölbreytta afþreyingu á hóteli. Falleg gönguleið er meðfram strandlengjunni, hægt er að ganga eða hjóla að smábátahöfninni í Agadir en það er um 4,5 km. Iðandi mannlíf, verslanir og veitingastaðir eru við höfnina. Um 4 km er í Souk El Had markaðinn sem engin má láta fram hjá sér fara.
Frá flugvellinum í Agadir til Palais des roses by Pickalbatros er um 24 km. 
Bóka