Myndasafn
- Pakkaferðir
Staðsetning
Hótellýsing
Robinson Agadir er gott 4 stjörnu hótel sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Hótelið stendur við baðströnd og er lítill supermarkaður á hótelinu með helstu nauðsynjum. Garður hótelsins hefur góða sólbaðsaðstöðu, 1 sundlaug og 1 inni sundlaug. Ýmis afþreying er á hótelinu, krakkaklúbbur, leikvöllur fyrir börn, borðtennis, blakvöllur og tennisvöllur (gegn gjaldi). Líkamsrækt, heilsulind þar sem hægt er að fá snyrti og vellíðunarmeðferðir gegn gjaldi. Skemmtikraftar, kvöldskemmtun og lifandi tónlist.
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, veitingastaður við ströndina, kaffihús, strandbar, bar og næturklúbbur.
Í boði eru Standard herbergi, Fjölskylduherbergi, Economy herbergi og Svíta. Í öllum herbergjum eru svalir eða verönd. Sjónvarp, skrifborð, minibar, ketill, hárþurrka og baðsloppur. Þráðlaust net, loftkæling og öryggishólf.
Þetta er góð 4 stjörnu gisting staðsett við ströndina sem hefur fjölbreytta afþreyingu á hótelinu sem og í næsta nágrenni eru golfvellir og hægt að stunda ýmsar vatnaíþróttir. Um 5,5 km er í smábátahöfn Agadir þar sem er iðandi mannlíf, veitingastaðir og verslanir. Um 4 km er í Souk El Had markaðinn sem engin má láta fram hjá sér fara.
Frá flugvellinum í Agadir til Robinson Agadir er um 24 km.