Marokkó
, Agadir

Hyatt Regency Taghazout

Yfirlit
Hyatt Regency Taghazout er gott 5 stjörnu hótel sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Hótelið stendur við baðströnd og er lítill supermarkaður á hótelinu með helstu nauðsynjar. Garður hótelsins er fallegur og hefur góða sólbaðsaðstöðu, beint aðgengi á ströndina og 3 sundlaugar. Ýmis afþreying er á hótelinu, krakkaklúbbur, reiðhjólaleiga, tennisvöllur (gegn gjaldi), aðstaða fyrir vatnaíþróttir (gegn gjaldi) og kvöldskemmtanir. Líkamsrækt og heilsulind þar sem hægt er að kaupa snyrti og vellíðunarmeðferðir.
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, veitingastaður, strandbar og bar. 

Staðsetning

Hótellýsing

Í boði eru King herbergi, Svíta með verönd og Svíta með einka sundlaug . Hægt er að fá herbergin með sjávarsýn og hliðarsjávarsýn gegn gjaldi. Í öllum herbergjum eru svalir eða verönd. Sjónvarp, kaffivél, minibar og hárþurrka. Þráðlaust net, loftkæling og öryggishólf. 
Þetta er góð 5 stjörnu gisting sem er staðsett við ströndina þar sem hægt er að snorkla og leigja paddle board, kayak og seglbretti. Fallegar göngu og hjólaleiðir eru meðfram strandlengjunni.
Um 17 km akstur er í iðandi mannlíf Agadir og 4 km í fallega sjávarþorpið Taghazout.  
Frá flugvellinum í Agadir til Hyatt Regency Taghazout er um 45 km.
Bóka