Hyatt Place Taghazout Bay er gott 5 stjörnu hótel í Taghazout sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Um 1,5 km er á næstu baðströnd en hótelið býður upp á akstur til og frá strönd eftir tímatöflu hótelsins. Lítill supermarkaður er á hótelinu með helstu nauðsynjum. Garður hótelsins er stór, góð sólbaðsaðstaða og 2 sundlaugar. Ýmis afþreying er á hótelinu. Leikjaherbergi fyrir börn, úti leiksvæði og borðtennis. Líkamsrækt, heilsulind, snyrtimeðferðir (gegn gjaldi) og golfvöllur (gegn gjaldi). Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, veitingastaður, sundlaugarbar og bar.
Myndasafn
Bóka
Pakkaferðir
Staðsetning
Hótellýsing
Hyatt Place Taghazout Bay er gott 5 stjörnu hótel í Taghazout sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Um 1,5 km er á næstu baðströnd en hótelið býður upp á akstur til og frá strönd eftir tímatöflu hótelsins. Lítill supermarkaður er á hótelinu með helstu nauðsynjum. Garður hótelsins er stór, góð sólbaðsaðstaða og 2 sundlaugar. Ýmis afþreying er á hótelinu. Leikjaherbergi fyrir börn, úti leiksvæði og borðtennis. Líkamsrækt, heilsulind, snyrtimeðferðir (gegn gjaldi) og golfvöllur (gegn gjaldi).
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, veitingastaður, sundlaugarbar og bar.
Í boði eru Standard tvíbýli, Fjölskylduherbergi, Svíta og Villa með 3 svefnherbergjum. Í herbergjunum og svítunni eru svalir eða verönd. Í villunni er einskasundlaug. Í öllum herbergjum er sjónvarp, kaffivél, minibar, hárþurrka, inniskór og sloppur. Þráðlaust net, loftkæling og öryggishólf.
Þetta er góð 5 stjörnu gisting sem er staðsett í Taghazout flóanum. Hægt að láta sér líða vel og slaka á í heilsulind hótelsins en einnig er fjölbreytt afþreying í næsta nágrenni eins og brimbretta iðkun, golf og gönguferðir.
Frá flugvellinum í Agadir til Hyatt Place Taghazout Bay er um 42 km.