Edinborgar- slagurinn í Skotlandi - 3.-5. október
Frá169.900 ISK
Upplifðu Edinborg eins og hún gerist best!
Í þessari ferð verður farið á nágrannaslag Hearts og Hibs í glæsilegri umgjörð Excutive Europe Lounge á Tynecastle Park. Við kynnumst sögu þessarar sögufrægu borgar og gæðum okkur á ljúffengu viskíi í fararstjórn þriggja áhugamanna um skoska knattspyrnu.
Fararstjórar í ferðinni eru Stefán Pálsson, Páll Kristjánsson og Björn Berg.
Innifalið í pakkanum er:
-Beint flug með Icelandair til Edinborgar + 23 kg innritaður farangur
-Gisting á Hilton Edinburgh Carlton í tvær nætur + morgunmatur
-VIP miði á Hearts - Hibs í Excutive Europe Lounge á Tynecstle Park
-Söguganga um borgina
-Viskí-smökkun
-Rúta til og frá flugvellinum
Verðið á þessum pakka er 169.900 kr á mann miðað við tvo saman í herbergi en verðið er 203.900 krónur fyrir þá sem vilja vera í einstaklingsherbergi. Það eru aðeins 30 sæti í boði í þessari einstöku ferð til Skotlands.
Yfirlit