Fuerteventura
, Caleta de Fuste

Barcelo Fuerteventura Mar

Frá124.900 ISK
Yfirlit
Barcelo Fuerteventura Mar er gott 4 stjörnu hótel á Caleta de Fuste sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Aðeins er um 5 mínútna gangur í supermarkað og stendur hótelið við baðströnd. Garður hótelsins er stór, 3 sundlaugar og skemmtilegt vatns barnaleiksvæði þar sem hægt er að sulla og renna sér í lítilli rennibraut. Krakkaklúbbur, kvöldskemmtun og lifandi tónlist er á hótelinu. Líkamsrækt (gegn gjaldi), heilsulind (gegn gjaldi), tennisvöllur (gegn gjaldi) og mini golf (gegn gjaldi) er einnig á hótelinu. Í næsta nágrenni er fjölbreytt afþreying vatnasport, hjólaleigur, veitingastaðir og barir. 
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, bar og snarlbar.
 

Staðsetning

Hótellýsing

Í boði eru tvíbýli, deluxe tvíbýli og fjölskyldu herbergi. Í öllum herbergjum eru svalir eða verönd. Sjónvarp, sími, hárþurrka, loftkæling, þráðlaust net, öryggishólf (gegn gjaldi) og minibar (gegn gjaldi). 
Þetta er góð 4 stjörnu gisting á Caleta de Fuste svæðinu þar sem er fjölbreytt afþreying á hótelinu og í næsta nágrenni fyrir bæði börn og fullorðna. 
Frá flugvellinum er um 8 km á Barcelo Fuerteventura Mar.
 
Frá 124.900 ISK
Bóka