Madeira

Madeira er töfrandi eyja í Atlantshafinu sem tilheyrir Portúgal.Í hjarta Madeira liggur höfuðborgin Funchal sem er skemmtileg og lifandi borg. Þarna er að finna sjarmerandi steini lagðar götur, litrík hús og ýmis söguleg kennileiti. Einnig verðum við að minnast á matargerðina sem er frábær og ekki skaðar að vínmenningin og víngerðarlistin á Madeira. Á eyjunni er að finna stórbrotið landslag, allt frá mögnuðum fjöllum í dali þar sem vínekrur blómstra.  Beint flug vikuleg með Play á þriðjudögum frá 15.október til 6. maí. 

Madeira er töfrandi eyja í Atlantshafinu sem tilheyrir Portúgal. Hún er staðsett um 400 km norður af Tenerife og veðrið því nánast alltaf gott. Í hjarta Madeira liggur höfuðborgin Funchal sem er skemmtileg og lifandi borg. Þarna er að finna sjarmerandi steinilagðar götur, litrík hús og ýmis söguleg kennileiti. Einnig verðum við að minnast á matargerðina sem er frábær og ekki skaðar að vínmenningin og víngerðarlistin á Madeira er eitthvað sem þarf að prófa og njóta. 
Á eyjunni er að finna stórbrotið landslag, allt frá mögnuðum fjöllum í dali þar sem vínekrur blómstra. Þeir sem hafa áhuga á útivist ættu að finna þarna paradís því hægt að finna fjölmargar frábærar gönguleiðir um skóga, fossa og grænar grundir. 
Íbúarnir eru vinalegir og gestrisnin þeim í blóð borin og því er heimsókn til Madeira mjög góð hugmynd, hvort sem sóst er eftir afslöppun á ströndinni, göngutúrum um eyjuna eða bátsferðum t.d. til að skoða höfrunga og hvali. Það má líka minnast á að hinn eini sanni Christiano Ronaldo er frá Funchal og flugvöllurinn er nefndur eftir honum. Beint flug vikuleg með Play á þriðjudögum frá 15.október til 6. maí.