Mallorca
, Can Picafort

Zafiro Mallorca

Yfirlit
Zafrio Mallorca er gott 4 stjörnu hótel í Can Picafort sem er frábært fjölskyldur. 
Supermarkaður er á hótelinu og 500 metrar eru á ströndina.
Garður hótelsins er stór með 3 sundlaugum, Oasis laugin er aðeins fyrir fullorðna þar ríkir ró og er hægt að láta líða úr sér eftir góðan sundsprett í „Balanese“ rúmum sem eru við sundlaugarbakkann. Barnalaugin er ævintýri líkust með sjóræningjaskipi, rennibrautum og leiksvæði. Þriðja laugin er bæði fyrir fullorðna og börn.  
Á daginn er mikið um að vera fyrir börnin krakkaklúbbur er á sumrin fyrir krakka á aldrinum 4-15 ára og er þeim skipt upp í hópa eftir aldri. Leikvöllur fyrir krakka er einnig á hótelinu. 
Fjölbreytt afþreying er á hótelinu t.d píla, borðtennis, mini golf (gegn gjaldi), líkamsrækt, vatnsleikfimi og kvöldskemmtun. 
 

Staðsetning

Hótellýsing

Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, bar og sundlaugarbar.
Í boði eru stúdíó, íbúð með einu svefnherbergi og íbúð með tveimur svefnherbergjum ásamt þakíbúðum með einu eða tveimur svefnherbergjum. Allar íbúðir eru með svölum eða verönd. Loftkælingu, sjónvarpi, síma og þráðlausu neti. Eldhús með borðbúnaði, ísskáp og örbylgjuofni.  
Þetta er gott 4 stjörnu hótel sem hentar vel fyrir fjölskyldur með góðri afþreyingu bæði fyrir börn og fullorðna. 
Frá flugvellinum í Palma til Can Picafort er um 64 km. 
 
Bóka