Mallorca
, Can Picafort

Zafiro Can Picafort

Yfirlit
Zafrio Can Picafort er sannkallað fjölskylduhótel.
Supermarkaður er á hótelinu og 700 metrar eru á ströndina.
Garður hótelsins er stór með 3 sundlaugum, Oasis laugin er aðeins fyrir fullorðna þar ríkir ró og friður og er hægt að láta líða úr sér í „Balanese“ rúmum sem eru við sundlaugarbakkann. Barnalaugin er ævintýri líkust með sjóræningjaskipi, rennibrautum og leiksvæði. Þriðja laugin er bæði fyrir fullorðna og börn.  
Á daginn er mikið um að vera fyrir börnin krakkaklúbbur er á sumrin fyrir krakka á aldrinum 4-15 ára og er þeim skipt upp í hópa eftir aldri. 
 

Staðsetning

Hótellýsing

Fjölbreytt afþreying er á hótelinu t.d píla, borðtennis, mini golf, líkamsrækt, vatnsleikfimi og kvöldskemmtun. 
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, veitingastaður, bar og sundlaugarbar.
Í boði er íbúð með einu svefnherbergi og þakíbúð með einu svefnherbergi. Allar íbúðir eru með svölum eða verönd. Loftkælingu, sjónvarpi, síma og þráðlausu neti. Eldhús með borðbúnaði, ísskáp og örbylgjuofni.  
Þetta er gott 4 stjörnu hótel sem hentar vel fyrir fjölskyldur með góðri afþreyingu bæði fyrir börn og fullorðna. 
Frá flugvellinum í Palma til Can Picafort er um 64 km.
 
Bóka