Spánn
, Kanarí

Vistaflor Bungalows

Yfirlit
Bungalows Vistaflor er gott 3 stjörnu hótel á Maspalomas sem hentar vel fyrir fjölskyldur. Supermarkaður er á hótelinu með helstu nauðsynjar og er um 2 km á ströndina. Hótelið býður upp á skutlu sem keyrir gesti hótelsins til og frá ströndinni eftir tímatöflu hótelsins án gjalds. 
Garður hótelsins er notalegur með góðri sólbaðsaðstöðu, 1 sundlaug, 1 barnalaug og leiksvæði fyrir börn. Ýmis afþreying er á hótelinu, krakkaklúbbur, píla, borðtennis og kvöldskemmtun bæði fyrir börn og fullorðna. Athugið að skemmtidagskrá og krakkaklúbbur getur verið árstíðarbundin.
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, veitingastaður, bar og sundlaugarbar. 
 

Staðsetning

Hótellýsing

Í boði eru smáhýsi með einu svefnherbergi eða tveimur svefnherbergjum. Í öllum smáhýsum er verönd og svalir, athugið að smáhýsin eru á tveimur hæðum. Eldhúskrókur, örbylgjuofn, lítill ísskápur kaffivél, og borðbúnaður. Sjónvarp, sími, hárþurrka, þráðlaust net og öryggishólf (gegn gjaldi).
Þetta er góð 3 stjörnu gisting í rólegu hverfi þar sem hina ýmsu afþreyingu er að finna í næsta nágrenni, aðeins 1,5 km er í Yumbo verlunarmiðstöðina þar sem er iðandi mannlíf. 
Frá flugvellinum í Gran Canaria er um 32 km á Bungalows Vistaflor.
 
Bóka