Hvernig hljómar það að skella sér til Köben og sjá Pétur Jóhann fara á kostum á fimmtudagskvöldinu og upplifa sjálfan J-daginn í Kaupmannahöfn á föstudeginum? Á J-deginum kynnir Tuborg jólabjórinn sinn en það er mikið fjör í borginni vegna þessa. Þetta hreinlega getur ekki klikkað.
Innifalið í pakkanum er flug, gisting í 3 nætur og miði á uppistandið hjá Pétri Jóhanni þann 6. nóvember.