Spánn
, Kanarí

Riu Vistamar - Allt innifalið

Yfirlit

Hotel Riu Vistamar er gott 4 stjörnu allt innifalið hótel í Puerto Rico sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Hótelið stendur á kletti með fallegu útsýni yfir hafið. Lítill súpermarkaður er á hótelinu með helstu nauðsynjum og eru 2 km í næstu baðströnd. Hótelið býður upp á skutlu sem keyrir gesti hótelsins til og frá ströndinni eftir tímatöflu hótelsins án gjalds. 

Garður hótelsins hefur góða sólbaðsaðstöðu. 2 sundlaugar, 1 barnalaug og busllaug. Fjölbreytt afþreying er á hótelinu, krakkaklúbbur, leiksvæði fyrir börn, hjólaleiga, lifandi tónlist, kvöldskemmtun, blakvöllur og líkamsrækt. 

Staðsetning

Hótellýsing

Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður og asískur veitingastaður (panta þarf borð). Sundlaugarbar, sport bar og bar.  

Í boði eru tvíbýli og junior svíta. Í öllum herbergjum eru svalir eða verönd. Sjónvarp, sími, minibar, loftkæling, þráðlaust net og öryggishólf (gegn gjaldi).  

Þetta er góð 4 stjörnu gisting þar sem ýmis afþreying er í boði á hótelinu fyrir bæði börn og fullorðna.

Frá flugvellinum í Gran Canaria er um 50 km á Hotel Riu Vistamar.  

Bóka