Spánn
, Benidorm

RH Victoria

Yfirlit
Rh Victoria er gott 4 stjörnu hótel á Benidorm sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Supermarkaður er í um 5 mínútna göngufjarlægð og um 10 mínútna gangur er á Levante baðströndina.  
 
Garður hótelsins er ekki stór en hefur ágætis sólbaðsaðstöðu, 1 sundlaug, 1 barnalaug og leiksvæði fyrir börn. Ýmis afþreying er á hótelinu, krakkaklúbbur, leikaðstaða inni og úti. Líkamsrækt, heilsulind (gegn gjaldi), snyrtistofa (gegn gjaldi). Borðtennis, biljarðborð, skemmtikraftar, kvöldskemmtanir og lifandi tónlist. Einnig er aðstaða fyrir hjólafólk á hótelinu.    
 
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, sundlaugarbar og kaffihús/bar.  

Staðsetning

Hótellýsing

Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, sundlaugarbar og kaffihús/bar.  
 
Í boði eru tvíbýli og fjölskylduherbergi, einnig er í boði herbergi með sjávarsýn gegn gjaldi.  
 
Í öllum herbergjum eru svalir eða verönd. Sjónvarp. sími, skrifborð, minibar, hárþurrka, loftkæling á sumrin og hitun á veturna. Þráðlaust net og öryggishólf (gegn gjaldi).  
 
Þetta er góð vel staðsett 4 stjörnu gisting fyrir fjölskyldur og pör þar sem fjölbreytta afþreyingu er að finna í næsta nágrenni. Gamli bærinn, verslanir, veitingahús og vatnasport er í göngufæri.  
 
Frá flugvellinum í Alicante er um 58 km á Rh Victoria.  
Bóka