Spánn
, Benidorm

RH Princesa

Yfirlit
RH Princesa er gott 4 stjörnu hótel á Benidorm sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Supermarkaður er í um 3 mínútna göngufjarlægð og um 10 mínútna gangur á Levante baðströndina.  
 
Garður hótelsins hefur góða sólbaðsaðstöðu, 1 stór sundlaug, 1 heitur pottur, 1 minni laug með vatnsrennibraut og sullsvæði með leiktækjum fyrir börn. Ýmis afþreying er á hótelinu, krakkaklúbbur, leiksvæði fyrir börn utan og innandyra, leikherbergi, píla, borðtennis, biljarðborð, 
 
skemmtun fyrir bæði börn og fullorðna á daginn og kvöldin. Líkamsrækt og heilsulind.  
 
Athugið að krakkaklúbbur og útileiksvæði er aðeins opið á sumrin og um páska.  
 
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, kaffihús/bar og snarlbar. 

Staðsetning

Hótellýsing

Í boði eru tvíbýli og fjölskylduherbergi. Í öllum herbergjum eru svalir. Sjónvarp, sími, minibar, hárþurrka, loftkæling á sumrin, hitun á veturna, þráðlaust net og öryggishólf (gegn gjaldi).  
 
Þetta er góð 4 stjörnu gisting fyrir fjölskyldur og pör þar sem fjölbreytta afþreyingu er að finna bæði á hóteli og í næsta nágrenni. Góð leikaðstaða úti fyrir börn á hótelinu sem opið er á sumrin og um páska.  
 
Frá flugvellinum í Alicante er um 60 km á RH Princesa. 
Bóka