Ítalía

Kvennaferð á Ítalíu með Karen Sævars 14.-21. maí - UPPSELT

Innifalið í verði er flug til Mílanó með Icelandair. Akstur til og frá flugvelli. Gisting í 7 nætur á Chervo með morgunverð. 6 golfhringir. Íslensk fararstjórn. Flutningur á golfsett og 23 kg innritaður farangur. 

Aukagjald fyrir einbýli er 90.000 kr. 

Yfirlit
Chervo er fallegt golfsvæði í nágrenni við Gardavatnið á Ítalíu eða í San Vigilio í Trentico. 
Chervo golfvöllurinn er hannaður af Kurt Rossknecht og býður upp á 36 golfholur eða fjóra 9 holu velli. Þar af er 9 holu frábær æfingavöllur og svo keppnisvellir þar sem leikið er til skiptis 18 holur samsettar af hvíta, rauða eða gula hring. Frábært æfingasvæði er við klúbbhúsið, stór púttflöt, stór vippflöt og sú þriðja þar sem hægt er að slá millihögg eða 20-50 metra högg og glompuhögg. Allt til alls til að bæta golfið þitt.
 
Karen er LPGA golfkennari og hefur verið farastjóri til fjölda ára þá á Spáni, Portúgal og Ítalíu. Karen hefur spilað golf og verið í kringum golfíþróttina frá barnæsku og eftir farsælan keppnisferil er hún búin að kenna golf á Íslandi  í yfir 15 ár.

 

Staðsetning

Hótellýsing

Chervo hótelið er gott 4 stjörnu hóte staðsett í San Vigilio í Trentico.
Í garði hótelsins er sundlaug með sólbekkjum þar sem huggulegt er að slaka á eftir golf dagsins. Veitingastaður og bar er á hótelinu. Glæsileg heilsulind með innilaug, nuddpottum, sauna og hvíldaraðstöðu. Herbergin eru hugguleg og eru mismunandi af stærð og stíl en öll útbúin helstu þægindum og eru með loftkælingu. 
veitingar eru í boði allan daginn í klúbbhúsi og þar er hægt að fá góðan kvöldmat. Frá herbergjum er u.þ.b. 100-200 metra ganga í klúbbhúsið. 
Innifalið í verði er flug til Mílanó með Icelandair. Akstur til og frá flugvelli. Gisting í 7 nætur á Chervo með morgunverð. 6 golfhringir. Íslensk fararstjórn. Flutningur á golfsett og 23 kg innritaður farangur. 
 
Skoða flug og hótel