Frá Akureyri
, Tenerife - Playa de las Americas

Hotel Best Jacaranda

Frá159.900 ISK
Yfirlit
Best Jacaranda er skemmtilegt hótel staðsett á Costa Adeje ströndinni. Í næsta nágrenni er fjöldi veitingastaða og verslana og aðeins 650 metrar er niður á Fanabe ströndina.  
Hótelgarðurinn er stór og í honum eru nokkrar sundlaugar, nóg af sólbekkjum og sólhlífum. Fjölbreytt dagskrá er í boði yfir daginn og krakkaklúbbur. Á kvöldin er skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna. Hægt að fá allt innifalið.  

Staðsetning

Hótellýsing

Á hótelinu er veitingastaður þar sem er boðið upp á máltíðir af girnilegu hlaðborði.  Einnig er bar í hótelgarðinum þar sem hægt er að fá sér svaladrykk og svo er snarlbar á hótelinu sem er opinn allan daginn. Þar er notalegt að sitja og njóta útsýnisins. Á hótelinu er líka píanóbar þar sem myndast skemmtileg stemning.  

 
Á hótelinu er líkamsræktarstöð með sauna, þar er líka tennisvöllur, strandblakvöllur fjölnota íþróttavöllur og borðtennisborð. Á kvöldin er skemmtidagskrá fyrir gesti hótelsins. 
 
Herbergin eru björt, rúmgóð og snyrtileg. Veggir eru ljósmálaðir og húsgögn eru klassísk. Flísar eru á gólfum. Í öllum herbergjum er loftkæling, net, sjónvarp og míníbar. Baðherbergin eru snyrtileg. Þau eru flísalögð og þar eru sturta og bað, hárþurrka og helstu snyrtivörur. Öllum herbergjum fylgja svalir eða verönd. 
Frá 159.900 ISK
Bóka