Spánn
, Costa Daurada
, Salou

H10 Cambrils Playa

Yfirlit
H10 Cambrils Playa er gott 4 stjörnu hótel á Cambrills svæðinu sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Supermarkaður er í um 10 mínútna göngufjarlægð og um 300 metrar á næstu baðströnd. Garður hótelsins er stór með góða sólbaðsaðstöðu, 1 sundlaug og 1 barnalaug. Ýmis afþreying er á hótelinu. Krakkaklúbbur, barna leiksvæði úti, líkamsrækt, tennisvellir (gegn gjaldi), körfu-og fótboltavellir (gegn gjaldi), reiðhjólaleiga, lifandi tónlist og skemmtun jafnt á daginn sem á kvöldin fyrir bæði börn og fullorðna. Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, sundlaugarbar og bar. Í boði eru tvíbýli, fjölskylduherbergi og junior svíta. Í öllum herbergjum eru svalir eða verönd. Sjónvarp, minibar, hárþurrka, þráðlaust net, loftkæling og öryggishólf. Í junior svítunni er einnig svefnsófi en í tvíbýli og fjölskylduherbergi er skrifborð. Athugið að herbergin eru lítil. Þetta er góð 4 stjörnu gisting þar sem fjölbreytt afþreying er í boði fyrir bæði börn og fullorðna á hóteli. Hótelið er vottað af Agéncia Catalana de Turisme þar sem það sérhæfir sig í fjölskylduferðamennsku og hjólaferðamennsku þar sem það hefur sérhæfða þjónustu fyrir bæði atvinnu-og áhugamanna hjólreiðamenn. Er staðsett í heillandi sjávarþorpi sem hefur upp á margt að bjóða, skemmtilegt göngusvæði við sjávarsíðuna og fjölbreyttir veitingastaðir sem sérhæfa sig í árstíðarbundnu sjávarfangi. Frá flugvellinum í Barcelona er um 102 km á H10 Cambrils Playa.

Staðsetning

Hótellýsing

Bóka