Marrakech
Marrakech er svo sannarlega áhugaverð borg þar sem hið forna og sögulega mætir nútímanum. Borgin er veisla fyrir skynfærin þar sem litir, lykt og hljóð renna saman í lifandi kokteil af menningu og mannlífi. Torgin eru blómleg, göturnar þröngar, byggingarlistin oft virkilega áhugaverð og matargerðin frábær. Hvort sem þú sækir í fornar hallir, gróskumikla garða eða spennandi götulíf þá lofar Marrakech ógleymanlegri upplifun í tímalausum sjarma.  Beint flug með Play vikulega tvisvar í viku frá 24. október og út nóvember á fimmtudögum og sunnudögum. Flug í desember yfir jól og áramót. Frá 13. febrúar – 4. maí verður flug tvisvar í viku á fimmtudögum og sunnudögum.
Sýna síu
Reset Filters
Sort By:
Reset Filters
Loka

Verðbil

0 ISK
700.000 ISK

Nætur

0
100
Marrakech er svo sannarlega áhugaverð borg þar sem hið forna og sögulega mætir nútímanum. Borgin er veisla fyrir skynfærin þar sem litir, lykt og hljóð renna saman í lifandi kokteil af menningu og mannlífi. Torgin eru blómleg, göturnar þröngar, byggingarlistin oft virkilega áhugaverð og matargerðin frábær. Hvort sem þú sækir í fornar hallir, gróskumikla garða eða spennandi götulíf þá lofar Marrakesh ógleymanlegri upplifun í tímalausum sjarma.
Marrakech er skráð í Unesco World-Heritage enda gríðarlega sögufræg borg. Hún hefur almennt verið síðasti viðkomustaður þeirra sem ætla sér út í Sahara eyðimörkina, nú eða sá fyrsti þegar til baka er komið. Hægt er einmitt að fara í úlfaldaferðir í eyðimörkinni, eitthvað sem við Íslendingar þekkjum lítið. Gaman er að heimsækja Jemaa el-Fnaa torgið en það er eitt það vinsælasta í gjörvallri Afríku og hægt að finna alls konar listamenn, snákatemjara, trommuslátt og dansatriði. 
Marrakech er hreinlega ógleymanlegt samansafn af öllu og skylda að heimsækja einhvern tímann á lífsleiðinni. Beint flug með Play vikulega tvisvar í viku frá 24. október og út nóvember á fimmtudögum og sunnudögum. Flug í desember yfir jól og áramót. Frá 13. febrúar – 4. maí verður flug tvisvar í viku á fimmtudögum og sunnudögum.