Lopesan Costa Meloneras er gott 5 stjörnu hótel á Meloneras svæðinu sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör. Supermarkaður er í um 5 mínútna göngufjarlægð og 10 mínútur á Maspalomas baðströndina. Garður hótelsins er stór, gróðursæll og með góða sólbaðsaðstöðu. 5 sundlaugar, 1 barnalaug og lítil manngerð strönd. Ýmis afþreying er á hótelinu, krakkaklúbbur, barnaleiksvæði úti, leikjaherbergi inni, skemmtidagskrá, lifandi tónlist, líkamsrækt, heilsulind og spa meðferðir (gegn gjaldi).
Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, 5 veitingastaðir, 3 snarlbarir og 3 barir.
Myndasafn
Bóka
Pakkaferðir
Staðsetning
Hótellýsing
Í boði eru deluxe tvíbýli, fjölskylduherbergi og svítur. Hægt er að kaupa aukalega sundlaugar, sjávar og garðsýni. Í öllum herbergjum eru svalir eða verönd. Loftkæling, baðsloppur, hárþurrka, minibar, sími, sjónvarp, ketill, þráðlaust net og öryggishólf (gegn gjaldi).
Þetta er góð 5 stjörnu gisting við þar sem fjölbreytt afþreying er á hótelinu fyrir alla aldurshópa. Fallegar gönguleiðir, veitingastaðir og verslanir í nágrenninu.
Frá flugvellinum í Gran Canaria er um 35 km á Lopsen Costa Meloneras.