Spánn
, Kanarí

Lopesan Baobab

Yfirlit
Lopsean Baobab er gott 5 stjörnu hótel á Meloneras svæðinu sem hentar vel fyrir fjölskyldur og pör.  Supermarkaður er á hótelinu og eru um 700 metrar á ströndina.  
Garður hótelsins er stór, gróðursæll og undir afrískum áhrifum. Góð sólbaðsaðstaða, 7 sundlaugar, 1 barnalaug með rennibraut og gerviströnd. Um garðinn rennur „á“ þar sem hægt er að fljóta á kút og slappa af.   
Fjölbreytt afþreying er á hótelinu, líkamsrækt, borðtennis, píla og leikjaherbergi. Krakkaklúbbur fyrir 4-12 ára, leikjaherbergi og leikvöllur. Lifandi tónlist og kvöldskemmtun.  

Staðsetning

Hótellýsing

Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, 3 veitingastaðir, sundlaugarbar, kokteilbar, bar og kaffihús.  
Í boði eru tvíbýli og fjölskylduherbergi. Í öllum herbergjum eru svalir eða verönd. Sjónvarp, sími, minibar, skrifborð, sófi, hárþurrka og sloppur. Loftkæling, þráðlaust net og öryggishólf (gegn gjaldi).  
Þetta er glæsilegt 5 stjörnu hótel staðsett á Meloneras svæðinu þar sem fjölbreytt afþreying er á hóteli og í næsta nágrenni fyrir bæði börn og fullorðna.  
Frá flugvellinum í Gran Canaria er um 35 km á Lopsean Baobab., 
Bóka