Spánn
, Kanarí

Gran Canaria Princess

Yfirlit
Gran Canaria Princess er gott 4 stjörnu hótel á ensku ströndinni aðeins fyrir fullorðna. 
Um 5 mínútna gangur er í næsta supermarkað og um 10 mínútna ganga á ströndina. Garður hótelsins er stór, 2 sundlaugar og góð sólbaðsaðstaða. Fjölbreytt afþreying er á hótelinu, píla, borðtennis, líkamsrækt, körfuboltavöllur, heilsulind (meðferðir gegn gjaldi), vatnaleikfimi á daginn, skemmtidagskrá á kvöldin og lifandi tónlist. Í næsta nágrenni eru margir veitingastaðir og barir, hótelið er í göngufæri við Yumbo verslunarmiðstöðina og Kasbah.
 

Staðsetning

Hótellýsing

Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, snarlbar, sundlaugarbar og bar.
Í boði eru tvíbýli og einbýli en hægt er að fá sjávarsýn og garðsýni gegn gjaldi. Í öllum herbergjum eru svalir eða verönd. Sjónvarp, lítill ísskápur, ketill, hárþurrka, þráðlaust net, loftkæling og öryggishólf (gegn gjaldi). 
Þetta er góð vel staðsett 4 stjörnu gisting aðeins fyrir fullorðna á ensku ströndinni þar sem fjölbreytta afþreyingu er að finna á hótelinu og í næsta nágrenni. 
Frá flugvellinum í Gran Canaria er um 30 km á Gran canaria Princess.
 
Bóka