Cascais
Cascais – Perla Portúgals  
Cascais er heillandi strandbær við Lissabon, staðsettur í 30 km frá flugvellinum í Lissabon. Bærinn var hér áður fyrr lítið fiskimannaþorp en er í dag vinsæll sumardvalarstaður. Bærinn er þekktur fyrir fallegar strendur, sögulegar byggingar og líflegt mannlíf.  Þar er einnig fjöldi afþreyingarmöguleika, allt frá vatnasporti til gönguferða um fallega strandlengjuna sem tengir bæinn við Estoril. Hvort sem þú ert að leita að afslöppun á ströndinni, menningarlegri upplifun eða ævintýrum í náttúrunni, þá er Cascais fullkominn áfangastaður.  Beint flug tvisvar í viku. Hægt er að bóka rútuferðir til og frá flugvelli eða prívat transfer. Til að gera það þarf að senda póst á tango@tango.travel
Cascais Perla Portúgals  
Cascais er heillandi strandbær við Lissabon, staðsettur í 30 km frá flugvellinum í Lissabon. Bærinn var hér áður fyrr lítið fiskimannaþorp en er í dag vinsæll sumardvalarstaður. Bærinn er þekktur fyrir fallegar strendur, sögulegar byggingar og líflegt mannlíf.  Þar er einnig fjöldi afþreyingarmöguleika, allt frá vatnasporti til gönguferða um fallega strandlengjuna sem tengir bæinn við Estoril. Hvort sem þú ert að leita að afslöppun á ströndinni, menningarlegri upplifun eða ævintýrum í náttúrunni, þá er Cascais fullkominn áfangastaður.
Áhugavert að gera/skoða 
 
Saga og menning 
Cascais var upphaflega lítið fiskimannaþorp en breyttist í vinsælan sumardvalarstað þegar portúgalski konungurinn Luis I gerði bæinn að sinni sumardvöl á 19. öld. Aðalsmenn og evrópskir konungar fylgdu í kjölfarið, sem leiddi til þess að glæsilegar villur og höfðingjasetur risu við ströndina. Í dag er bæinn heimili margra menningarlegra og sögulegra staða, þar á meðal: 
  • Museu Condes de Castro Guimarães – Glæsileg villa sem er í dag listasafn. Santa Marta vitinn – Fallegur viti sem er með  á stórkostlegt útsýni yfir hafið. 
  • Gamli bærinn – Heillandi göngugötur með litlum verslunum, kaffihúsum og veitingastöðum. 
  • Museum of the Sea, Cascais – Sjávarminjasafn um sögu sjómennsku og hafsins í Cascais. 
  • Paula Rego Museum – Safn tileinkað einni af merkustu listakonum Portúgals, Paula Rego. 
Strendur  
  • Cascais er þekkt fyrir sínar fallegu strendur sem henta bæði til afslöppunar og vatnasports: 
  • Praia da Conceição – Ein vinsælasta ströndin, með gylltan sand og turkisblátt haf. 
  • Praia do Guincho – Fullkomin strönd fyrir brimbrettaiðkun, með kraftmiklum öldum og stórbrotinni náttúru. 
  • Cabo da Roca – Vestasti punktur meginlands Evrópu, með stórkostlegu útsýni yfir Atlantshafið. 
  • Praia da Rainha – Lítil en falleg strönd sem var einu sinni einkaströnd drottningar Améliu. 
Önnur afþreying  
  • Marechal Carmona Park – Fallegur almenningsgarður með grænum svæðum og tjörnum. 
  • Parque de Palmela – Frábær staður fyrir gönguferðir og náttúruupplifun. 
  • Hjólaferð til Guincho Beach – Skemmtileg leið til að njóta strandlengjunnar. 
  • Bátasigling meðfram ströndinni – Frábær leið til að sjá Cascais frá sjónum. 
  • Gönguferðir í Sintra-Cascais þjóðgarðinum 
Verslun og markaðir  
 
Í Cascais er fjölbreytt úrval af  verslunum og mörkuðum. Hér eru nokkrir markaðir sem gaman er að fara á.  
Markaðir í Cascais 
  • Mercado da Vila – Vinsæll markaður sem býður upp á ferskan mat, handverk og ýmislegt annað. Þar eru einnig veitingastaðir og kaffihús sem skapa skemmtilega stemningu. 
  • Cascais Fish Market – Markaður við höfnina þar sem hægt er að kaupa ferskan fisk beint frá sjómönnum. 
  • Boca do Inferno Market – Markaður sem selur ullarvörur, leðurvörur og handmálaðar portúgalskar leirmuni. 
  • Estoril Handicrafts Fair – Handverksmarkaður í nágrannabænum Estoril sem býður upp á hefðbundið portúgalskt handverk. 
  • Cascais Antiques Fair – Vinsæll markaður sem er haldinn á miðvikudögum og býður upp á fornmuni, bækur, málverk og fleira. 
 
Verslanir og verslunarmiðstöðvar 
  • CascaiShopping – Stærsta verslunarmiðstöðin í Cascais með fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða. 
  • Casa da Guia – Einstök verslun og listagallerí með fallegu útsýni yfir sjóinn. 
  • Deja Lu Bookshop – Sérverslun sem selur notaðar bækur og rennir hagnaði sínum til góðgerðarmála. 
  • Cidadela Art District – Listahverfi með galleríum og verslunum sem selja listmuni og handverk. 
  • G B Store – Sérverslun sem flytur inn vörur frá Bretlandi, Hollandi, Svíþjóð og Suður-Afríku. 
Matur og drykkur  
Cascais er sannkölluð paradís fyrir matgæðinga, þar sem ferskir sjávarréttir hefðbundnir portúgalskir réttir og frábær vín og drykkir eru í boði.  
Matarmenning í Cascais 
Cascais er þekkt fyrir ferskan fisk og sjávarrétti, en einnig fyrir fjölbreytta alþjóðlega matargerð. Hér eru nokkrir af helstu réttunum sem þú ættir að prófa: 
  • Bacalhau à Brás – Klassískur portúgalskur saltfiskréttur með kartöflum og eggjum. 
  • Grillaður ferskur fiskur – Cascais er sjávarbær, og því er fiskur á borðum á flestum veitingastöðum. Sérstaklega vinsælt er að fá grillaðan sjávarfang með einföldum kryddum. 
  • Amêijoas à Bulhão Pato – Ljúffengar skelfisksskeljar í hvítlaukssósu með kóríander. 
  • Arroz de Marisco – Ríkulegur sjávarréttahrísgrjónaréttur með rækjum, kræklingi og humri. 
  • Pastéis de Nata – Fræg portúgölsk vanillubaka sem er fullkomin með kaffibolla. 
Drykkir og vín
 
Portúgal er þekkt fyrir frábær vín og drykki, og Cascais er engin undantekning: 
 
  • Vinho Verde – Létt og ferskt hvítvín sem er fullkomið með sjávarréttum. 
  • Portvín – Sæt vín sem eru frábær með eftirréttum. 
  • Ginjinha – Kirsuberalíkjör sem er vinsæll í Portúgal. 
  • Bica (portúgalskt espresso) – Sterkt kaffi sem er ómissandi hluti af daglegu lífi í Cascais.
 
Góðir veitingastaðirnir í Cascais 
 
Ef þú ert að leita að frábærum stöðum til að borða, þá eru hér nokkrir vinsælir veitingastaðir í bænum: 
  • Dom Manolo– Frábær staður fyrir grillaðan mat. 
  • Conversas na Gandarinha – Veitingastaður með ekta portúgalska stemningu. 
  • Poetas e Arlequins– Skemmtilegur staður með fjölbreyttum réttum.